Hvammur Bjarg er hús með einu svefnherbergi og svefnsófa í stofu. Við húsið er góð verönd með garðhúsgögnum, heitur pottur og útigrill. Eldhús og stofa eru í sama rými.
Lýsing
- 1 svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi – svefnsófi er í stofu
- Eldhús með eldavél, kæliskáp, örbylgjuofni, kaffikönnu, hitakönnu, brauðrist og borðbúnaði fyrir 6 manns.
- Í stofu er svefnsófi, sjóvarp og borðstofuborð.
- Frítt net í húsunum
- Baðherbergi með sturtu
- Á verönd er gasgrill, sófasett til að sitja úti og heitur pottur