Allt húsið

48 m²

Eldhús

Fjallasýn

Garður

Hvammur er 48 fm hús með svefnpláss fyrir allt að 6 manns í tveimur svefnherbergjum og svefnsófa í stofu. Við húsið er stór verönd með garðhúsgögnum, heitur pottur og útigrill. Eldhús og stofa eru í sama rými.

Lýsing

  • 2 svefnherbergi með tvíbreiðum rúmum – hægt að taka í sundur í öðru herberginu
  • Eldhús með eldavél, kæliskáp með frystihólfi, örbylgjuofni, bakarofni, kaffikönnu, hitakönnu, brauðrist og borðbúnaði fyrir 8 manns.
  • Rúmgóð stofa með svefnsófa, sjónvarp, útvarp og borðstofuborði. 
  • Frítt net í húsunum
  • Baðherbergi með sturtu
  • Á verönd er gasgrill, borð og stólar til að borða úti og heitur pottur